https://www.youtube.com/watch?v=afjzr_Y9xKM&t=2s(Upprunalegu greinina úr Fréttablaðinu má finna hér)
Christian Mogensen hefur sérhæft sig í rannsóknum á svokölluðum Incel-hópum, en í þeim eru karlmenn sem eru skírlífir gegn vilja sínum og kenna femínisma og konum um það. Í nóvember árið 2020 kom út eftir hann skýrslan The Angry Internet þar sem fjallað er um ógnina sem lýðræði og jafnrétti stafar af þessum hópum, og umræðum þeirra sem tilheyra þeim.
Síðustu ár hefur karlmennskan sem hugtak verið í naflaskoðun. Karlmennska er bæði eitthvað sem ungir menn eigna sér, en einnig eitthvað sem þeir þvinga hver upp á annan. Það er einhver stöðluð hugmynd um karlmennsku, um hvernig karlmenn þeir eigi að vera. Eins og hversu mikið áfengi þeir eigi að geta drukkið, hversu mörgum konum þeir sofi hjá og hversu stórt typpi þeir þurfi að vera með. „Þetta er mjög stereótýpísk og mjög íhaldssöm hugmynd um það hvað karlmannlegur maður er, og það sem ég hef komist að í mínum rannsóknum er að þetta skapar gróðrarstíu fyrir skaðlegar hugmyndir um kynin meðal karlmanna,“ segir Christian og að einhver hluti karlmanna muni tileinka sér þetta í tilraun til að verða að karlmanni. „Þeir munu drekka of mikið, sofa hjá mörgum og tala illa um konur, trans, samkynhneigða og aðra minnihlutahópa. En það sem ég hef líka komist að, í samtölum mínum við þessa menn, er að þeim líkar þetta ekki og vilja þetta ekki. Þeir vita hvað þeir eru að gera og finnst þeir þurfa að gera þetta til að halda lífi og vera viðurkenndir í samfélaginu,“ segir Christian. Hann segir femínisma að mörgu leyti hafa verið leið til að frelsa konur og að karlmennskan hafi á sama tíma haldið karlmönnum niðri. „Þeir fáu karlmenn sem þrífast innan þessarar menningar eru þeir sem eru byggðir eins og víkingar, drekka endalaust magn af bjór og eru „bro dude“, sem er flott fyrir þá, en það sem mér finnst að karlmenn eigi að tileinka sér úr femínisma er að þeir mega vera hver sem er. Ég vil ekki að allir karlmenn séu mjúkir og viðkvæmir, ég vil bara að þeir sem eru það, hafi frelsi til að vera það.“
Það er yfirleitt þannig að ef einhver hverfur af spjallborðinu eða hættir að svara, þá er það gefið að hann fyrirfór sér. Ímynd karlmennsku stöðnuð
Hann segir að fyrir konur sé langt síðan þær fengu „leyfi“ til að vera alls konar, en að á sama tíma hafi ímyndin um karlmennsku staðið í stað. Er versta mögulega útkoman á því Incel-samfélagið? „Já, þeir eru með ákveðna hugmynd um þennan týpíska mann sem þeir kalla Chad eða eitthvað annað og samkvæmt þeim, ef þú ert ekki þannig, þá ertu lúser. Þeim finnst samfélagið sem forgangsraðar þessum „alfa“ karlmönnum hafa rangt fyrir sér, og svo í kjölfarið finnst þeim konur, sem ekki velja þá til að sofa hjá sér, hafa brotið á sér. Það finnst þeim vandamálið við femínisma, að konur fengu val til að velja sér bólfélaga, og þeir telja að ef ekki væri fyrir femínisma þá gætu þeir sofið hjá og átt það líf sem þeim hefði verið lofað fyrir femínisma. Þeir eru þannig líka að berjast við karlmennskuímyndina, en bara á annan hátt en ég,“ segir Christian og hlær.
Áhætta fyrir lýðræðið
Fram kemur í skýrslu hans að samkvæmt rannsóknum hans séu líklega um 850 virkir norrænir Incel-þátttakendur á spjallborðum og samfélagsmiðlum. Það er þó líka tekið fram að fjöldinn er ekki endilega stærsta vandamálið, heldur möguleiki þeirra sem hafa orðið, til að dreifa sínum boðskap til fleiri karlmanna. Christian segir þó eitt stærsta vandamálið við þennan hóp vera hversu hátt hlutfall þeirra er sem skaða sjálfa sig og stytta sér aldur. „Það er yfirleitt þannig að ef einhver hverfur af spjallborðinu eða hættir að svara, þá er það gefið að hann fyrirfór sér,“ segir Christian og það þyki honum alvarlegast við þetta. Hvað varðar lýðræðið segir Christian að hættan sé að þau sem ekki aðhyllast sömu skoðanir vilji ekki eða þori ekki að taka þátt í umræðum á netinu, af hræðslu við ofsóknir og jafnvel líflátshótanir. „Það þýðir að það er ekki raunverulegt lýðræði, því við höfum ekki fjölbreytileika. Það er risastórt vandamál að hvítir karlmenn, eins og ég, stjórni umræðunni. Ég tala kannski hratt en ég get ekki talað fyrir aðra,“ segir Christian. Christian segir að það þurfi bara einn typpabrandara til að eyðileggja einlægar samræður karlmanna. Mynd/Aðsend
Minni hætta á Norðurlöndunum
Hann segir að það sé alltaf einhver hætta á því að innan þessara hópa leynist einstaklingar sem muni nota ofbeldi, hann hafi minni áhyggjur af því á Norðurlöndunum en annars staðar, en samkvæmt niðurstöðum rannsókna hans, er ekki sama hætta á árásum á Norðurlöndunum og áttu sér stað í Isla Vista, Virginíu og Montréal. Eitt af því sem er lagt til í skýrslunni er að fólk, með þekkingu á kynjafræði, fari inn á spjallborð þessara samfélaga til að ræða við mennina. „Við græðum ekkert á því að fara þarna inn og bara segja þeim að þeir hafi rangt fyrir sér,“ segir Christian og leggur áherslu á að það þurfi að nálgast þá með öðrum leiðum og taka inn í myndina að að baki skoðunum þeirra séu líklega fimmtán ár af þeim sorgmæddum og þunglyndum.
Tilfinningar óþægilegar
Í skýrslunni kemur einmitt fram að margir þeirra sem leita inn á þessi spjallborð geri það í fyrstu í fullri einlægni yfir að líða illa, en svo fari samræðurnar og viðhorfin í aðra átt. „Vandamálið er hversu þröngan ramma karlmenn hafa til að ræða tilfinningar. Karlmenn mega tala um að vera svangir, þyrstir eða graðir. Það er engin sena í Rambó þar sem hann sest niður til að gráta. Karlmenn í bæði kvikmyndum og tölvuleikjum eru bardagamenn og sigurvegarar, svo hvert eiga karlmenn að fara til að segja: „Hæ, ég held að ég sé ljótur og að ég verði einn að eilífu“? Það er kannski ekki samtal sem þú átt við vini þína, nema þið séuð mjög nánir. Ég er 34 ára og er bara nýfarinn að ræða þetta við fólk sem ég hef samt þekkt nærri alla mína ævi.“ Hann segir að karlmenn séu óvanir að eiga slíkar umræður og mörgum hreinlega þyki það óþægilegt. Vandamálið er hversu þröngan ramma karlmenn hafa til að ræða tilfinningar. Karlmenn mega tala um að vera svangir, þyrstir eða graðir. „Það skapast kannski góðar umræður í hópi karlmanna, en það þarf ekki meira til en að einn segi: „Já, það er vegna þess að þú ert með lítið typpi“, fyrir samræður, sem voru svo fallegar, að breytast í typpabrandara og þá sem voru að opna sig að gera lítið úr vandamálum sínum,“ segir Christian og að það sama eigi sér stað á netinu. „Ég sé oft að fallegar umræður hafa átt sér stað, en svo kemur einn og segir að þetta sé allt konum að kenna og það finnst öllum það auðveldari umræða og þá verður það samtalið.“ Ein afleiðing þessarar þröngu skilgreiningar karlmennskunnar er, að sögn Christians, að karlmenn munu ýta hver á annan að falla undir hana, og eitt af því sem þeir munu nota til að sýna fram á karlmennsku sína er kynferðisleg virkni (e. sexual activity). „Sumir munu segja sögur á meðan aðrir segja frá kynlífinu sem þeir stunda, en svo eru einhverjir sem munu reyna að finna leiðir til að sanna það og þá eru myndir af konum ein leið til þess, og að deila þeim. Margir af þeim strákum sem ég hef talað við og hafa annað hvort séð eða deilt slíkum myndum og stuðlað að kynbundnu ofbeldi, segja að þeir viti að það sem þeir séu að gera sé rangt, en það séu allir að gera þetta.“ Ég sé oft að fallegar umræður hafa átt sér stað, en svo kemur einn og segir að þetta sé allt konum að kenna og það finnst öllum það auðveldari umræða og þá verður það samtalið Lögreglan þarf að vera með
Spurður hvernig hægt sé að finna lausnir á þessu vandamáli segir hann femínisma stóru lausnina, en nefnir einnig lögregluna og að það þurfi að auka þekkingu innan hennar og vald hennar til að takast á við þetta og bregðast við.
„Það þarf að ræða við unga karlmenn og hefja samtalið, og það á ekki að segja þeim að þeir ættu ekki að gera þetta og að þetta sé ólöglegt, því þeir vita það og er yfirleitt sama. Heldur ætti að tala við þá út frá af hverju þeir gera þetta og hver sé hvatinn, og hvort þetta sé ímynd karlmennskunnar sem þeir vilji ýta undir. Það þarf að opna samtalið um kynhegðun karlmanna og þetta samtal þarf að fara fram í skólum. Það á að segja þeim að kynlíf sé frábært og að þeir eigi að stunda það, en að það þurfi að vera með einhverjum sem vilji það jafnmikið og þeir.“
Christian var einn þriggja sem talaði á norrænni ráðstefnu í gær um kynferðislega friðhelgi á stafrænum tímum en þar talaði hann um lýðræðið og hvernig það hefur verið undir höggi, um karlmennsku, skilgreiningu hennar og hvernig hún getur verið skaðleg fyrir karla og svo í kjölfarið konur. Hægt er að horfa á það með því að ýta á tengilinn af Facebook hér að neðan.
Commentaires